Æ fleiri panta bláa endurvinnslutunnu hjá Reykjavíkurborg enda má setja fleira í hana en áður svo sem fernur, umbúðapappír, prentpappír, sléttan pappa, morgunkornspakka, eggjabakka, skókassa og hólka af salernis- og eldhúsrúllum svo dæmi sé tekið ásamt dagblöðum, tímaritum og auglýsingapósti.